Alþjóðaskrifstofa Háskólans á Bifröst
Á Bifröst er mikil áhersla lögð á alþjóðleika og samstarf við erlenda háskóla. Undanfarin ár hefur um 50% nemenda farið ár hvert í skiptinám erlendis í eina eða tvær annir.
Nemendum býðst að fara og stunda nám í einum af samstarfsskólum Bifrastar erlendis og er námið metið inn í grunnnám viðkomandi svo ekki glatist mikilvægur tími úr náminu. Skiptinám er góður undirbúningur fyrir nám og störf í alþjóðlegur umhverfi og um leið fá nemendur tækifæri til að kynnast annarri menningu, öðlast mikilvæga reynslu og víkka sjóndeildarhringinn. Að sama skapi kemur hópur erlendra skiptinema og dvelur á Bifröst ár hvert. Hér er listi yfir samstarfsskóla Háskólans á Bifröst.
Háskólinn er aðili að Erasmus-samstarfi evrópskra háskóla og er einnig með marga tvíhliða samninga við sérvalda háskóla utan Evrópu. Bifröst er meðlimur í "University of the Arctic" sem er samstarf nokkurra háskóla í Kanada, Bandaríkjunum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Rússlandi. Bifröst tekur einnig þátt í "north2north" skiptinemasamstarfi á vegum UArtic.
|
Alþjóðafulltrúi Háskólans á Bifröst
Kristín Ólafsdóttir
Alþjóðafulltrúi/
International Coordinator
_____________________________
Netfang/Email: kristinolafs@bifrost.is
Sími / Tel: +354 4333000
Fax: +354 433 3001 |
Hér má finna tengla yfir gagnlegar upplýsingar:
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins
Útlendingastofnun
Umsóknareyðublöð:
Forumsókn fyrir skiptinám
(Umsóknarfrestur vegna haustannar 2010 er 1. mars)
Learning Agreement fyrir skiptinám (Kúrsaval)
Umsókn um Erasmus styrk
(Umsóknarfrestur vegna haustannar 2010 er 1. mars)
Lokaskýrsla vegna Erasmus styrks
 |
| Skiptinemar í Kína |