Bóka má herbergi með tölvupósti gistiheimili@bifrost.is eða í síma 433 3000 á skrifstofutíma og 435 0101 milli klukkan 16:00 og 22:00. Einnig má bóka með faxi; 433 3001 / 435 0102.
Gestir skrá sig inn á Kaffi Bifröst.
Íbúðirnar eru í miðju háskólaþorpinu. Þær eru um 30 fermetrar að stærð, með eldhúskróki og baði. Snúrunettenging er í íbúðunum, ísskápur, örbylgjuofn og nauðsynlegustu eldhúsáhöld.
Fyrir tvo: 15.800 krónur
Fyrir einn: 9.900 krónur
Morgunverður er borinn fram, frá klukkan 7.00 - 10.30, á Kaffi Bifröst í næsta húsi við Hamragarða.
Opið frá klukkan sjö á morgnana til tíu á kvöldin.
Á Kaffi Bifröst er
boðið upp á úrval léttra rétta af matseðli, rétt dagsins í hádeginu, súpu, salatbar, frábært kaffi, barþjónustu og fleira.