Sveitarfélagið Borgarbyggð www.borgarbyggd.is
Í sveitarstjórnarkosningunum vorið 2006 sameinuðust sveitarfélögin Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppur og Kolbeinsstaðahreppur í eitt sveitarfélag. Sveitarfélagið er 4.850 ferkílómetrar að stærð og íbúar rúmlega 3700. Mörk sveitarfélagsins eru við Skarðsheiði í suðri og Haffjarðará í vestri. Til Borgarbyggðar teljast: Kolbeinsstaðahreppur, Hraunhreppur, Álftaneshreppur, Borgarhreppur, Borgarnes, Norðurárdalur, Stafholtstungur, Þverárhlíð, Hvítársíða, Hálsasveit, Reykholtsdalur, Flókadalur, Lundarreykjadalur, Bæjarsveit og Andakíll.
Ráðhús Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar er að Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Þar er hægt að skrá breytingar á lögheimili og þangað á að skila inn umsóknum um húsaleigubætur. S. 433 7100.
www.borgarbyggð.is
Safnahús Borgarfjarðar www.safnahus.is
Í Safnahúsi Borgarfjarðar eru Héraðsbókasafn Borgarfjarðar, Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar, Byggðasafn Borgarfjarðar, Listasafn Borgarness og náttúrugripasafn.
Safnahúsið er opið á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 13 - 18 en þriðjudaga og fimmtudaga kl.13 - 20. Sími 430 4200.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi www.syslumenn.is
Bjarnarbraut 2, s. 433 7600.
Opið er virka daga frá kl. 9 til 15.
Þinglýsingar samninga, ökuskírteini, vegabréf og þar er umsjón almannatrygginga.
Lögreglan í Borgarnesi www.logreglan.is
Bjarnarbraut 2, s. 433 7612.
Slökkvilið
Í Borgarnesi er starfandi slökkvilið; síminn er 112.
Húsaleigubætur
Á www.borgarbyggd.is er að finna umsóknareyðublað um húsaleigubætur fyrir íbúa Borgarbyggðar. Aðrir sækja um hjá viðeigandi sveitarfélagi.
Til að fá húsaleigubætur þarf að skila inn:
Launaseðlum síðustu þriggja mánaða.
Staðfestu afriti af síðustu skattaskýrslu.
Þinglýstum húsaleigusamningi.
Skessuhorn ehf.
Vesturlandsblaðið Skessuhorn hefur komið út vikulega síðan 1998 og er stærsta héraðsfréttablað landsins. Einnig rekur Skessuhorn ehf. fréttavefinn www.skessuhorn.is með m.a. fréttum frá Vesturlandi, hvað er á döfinni og smáauglýsingum. Unnt er að fylgjast vel með málefnum Vesturlands með því að gerast áskrifandi að Skessuhorninu, sími 422 5500 eða senda póst á skessuhorn@skessuhorn.is
Verslanir
Bónus
Digranesgötu 6. Opið mán. - fim. kl. 12 - 18.30, fös. 10 -19.30, lau. 10 -18 og sun. 12-18.
Hagkaup sérvara
Digranesgötu 6. Opið mán. - fim. 12 - 18.30 og 10 - 18 á lau. og 12 – 18 á sunnudögum.
Geirabakarí
Digranesgötu 6. Kaffihús og bakarí. Opið mán. - fim. kl. 7 - 18, fös. 7 - 19, lau. 8 -17 og sun. 9 -16.
Hyrnutorg
Borgarbraut 6. Í Hyrnutorgi eru ýmsar verslanir og þjónusta, til dæmis ÁTVR, VÍS-tryggingar, Borgarsport, Samkaup Úrval, blómabúð, Sóló-hársnyrtistofa, Lyfja apótek og hestavöruverslunin Knapinn.
Handavinnuhúsið
Brákarbraut 3.
Húsasmiðjan
Egilsholti 2 á leiðinni norður út úr Borgarnesi. Opið kl. 8 -18 virka daga en 10 -16 á laugardögum.
Landnámssetur Íslands
Verslun með minjagripi og íslenska hönnun. Opið alla daga frá 11 - 17. Lengri opnunartími á sumrin.
Omnis Brúartorgi
Selur ritföng, tölvur og fylgihluti, síma og margt fleira. Sinnir einnig viðgerðum á tölvum og eru með umboð fyrir Stöð 2 (Digital Ísland) og OgVodafone.
S. 433 0300. http://www.tolvuverslun.is
Póstur
Íslandspóstur Borgarnesi,
Borgarbraut 12. Opið mán. - fös. kl. 9.00 – 16.30. S. 5801200. www.posturinn.is
Sjoppur og bensínsala
Hyrnan
sjoppa – verslun – umferðarmiðstöð – bensínsala. Í Hyrnunni er N1 bensínstöð, Samkaup - Strax matvörubúð, sjoppa og veitingasala. Bensínstöðin er opin alla daga kl. 8-23. Matvöruverslunin og sjoppan eru opin kl. 9 - 23 alla daga en veitingasalan frá kl. 11 til 22 á kvöldin.
Skeljungur
Þar er opið kl. 8 til 23 í bensínsölu en 10.30 – 22.30 í grillinu.
S. 4371282.
ÓB – ódýrt bensín
Brúartorg á hægri hönd þegar keyrt er inn í Borgarnes af Borgarfjarðarbrúnni.
Þar er sjoppa, bensínstöð og grill. Bensínsjálfsali allan sólarhringinn. Opið 7.30 til 21.00. S. 4371259.
Rútuferðir
Frá Borgarnesi (Hyrnunni)
alla daga kl. 9.45, 15.45 og 20.00. Á föstudögum er einnig ferð kl. 18.05.
Frá Reykjavík (BSÍ)
alla daga kl. 8.30, 13.00 og 18.30. Föstudaga og sunnudaga er einnig ferð klukkan 17.00.
S. 840 6520. Trex s. 553 3737. www.trex.is
Fólki er bent á að fara á vef Trex til að fá nýjustu upplýsingar.
Strætó
Strætisvagnaferðir milli Borgarness og Reykjavíkur hófust í janúar 2009. Þjónustusími strætó er 540 2700. Nánari upplýsingar um áætlun vagnanna er að finna hér.
Heilbrigðismál
Tannlæknar Borgarnesi
Tannlæknastofa Arnar Ármanns Jónssonar og Önnu Gerðar Richter, Skallagrímsgötu 1, s. 437 1690.
Tannlæknastofa Hilmis Valssonar, Berugötu 12, s. 437 2223 og 897 3417.
Heilsugæslustöðin Borgarnesi
Heilsugæslan er opin kl. 8 -14 alla virka daga.
Borgarbraut 65. s. 437 1400.
Upplýsingar um læknavakt eftir lokun skiptiborðs s. 437 1400.
Vaktlæknir s. 852 4900.
Lyfja
Lyfja er í Hyrnutorgi og þar er opið kl. 9-18 virka daga en til kl. 19 á föstudögum og kl. 9 -14 á laugardögum.
Síminn er 437 1168. Læknasíminn er 437 2068.
Bankar
Í Borgarnesi eru útibú frá Kaupþing banka og Sparisjóði Mýrasýslu en hraðbanka er að finna í bönkunum og auk þess í verslunarmiðstöðinni Hyrnutorgi og í Hyrnunni.
Bílar
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf. er að Borgarbraut 55 en þar er smurstöð og dekkjaverkstæði, s. 437 1192.
Vélabær ehf. framkvæmir ahliða bíla- og búvélaviðgerðir. Vélabær er í Bæjarsveit, s. 435 1252.
Bílabær sinnir alhliða bílaviðgerðum. Bílabær er í húsinu nr. 5 við Brákarbraut. Sími: 437.300.
Frumherji hf.
Bílaskoðun er að Sólbakka 2, opið þrjá daga í viku, mán. til mið. kl. 8 -16.00, s. 570 9203.
Spölur
Lykill í göngin fæst hjá N1 og OB bensín (Olís) í Borgarnesi. Greiða þarf skilagjald er fyrir lykilinn. Hægt er að fá lykil með 100 ferðum. Einnig er hægt að fá 10 skipta afsláttarkort í gjaldskýlinu og á skrifstofu Spalar á Akranesi. Nánar á www.spolur.is