Grunnnám
Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst býður upp á þverfaglegt, áhugavert og fjölbreytt nám á sviði félagsvísinda. Í grunnnámi við deildina er boðið upp á BA nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði (HHS) annars vegar og alþjóðafræðum hins vegar.
Upplýsingar um umsóknir má nálgast hér.
Nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði er upprunnið í Oxford á Bretlandi, en hefur orðið vinsælt víða um heim. HHS er óvenjulegt að því leyti að í stað þess að nemendur sérhæfi sig í einni grein er þessum þrem kjarnagreinum blandað saman á áhugaverðan hátt sem færir nemandanum víðtæka þekkingu og djúpan skilning á samfélaginu í heild. Í stað þess að einblína á aðferðir einnar fræðigreinar nýtast þær allar saman til þess að öðlast heildræna sýn og skilning. Námið gefur mjög fjölbreytta möguleika á atvinnumarkaði og er góður grunnur fyrir framhaldsnám hvort sem er á hug- eða félagsvísindasviði.
Nám í alþjóðafræði veitir traustan grunn á sviði hug- og félagsvísinda með áherslu á alþjóðastjórnmál og störf í alþjóðastofnunum. Í grunninn byggir námið á stjórnmálafræði og heimspeki en nemendur geta valið sérhæfð námskeið á sviði öryggis- og varnarmála, átakafræði, þróunarfræði ofl. Eftir námið hafa nemendur grunn fyrir margvísleg áhugaverð störf á alþjóðlegum vettvangi og innan alþjóðastofnana. Alþjóðafræði er einnig góð undirstaða fyrir framhaldsnám á sviði alþjóðastjórnsýslu, alþjóðasamskipta, alþjóðalaga ofl.
Meistaranám
Í meistaranámi er boðið upp á nám til MA gráðu í Menningarstjórnun og Evrópufræðum.
Markmið MA náms í Evrópufræðum er að búa nemendur undir þátttöku í evrópsku og öðru fjölþjóðlegu samstarfi. Með aðildinni að evrópska efnahagssvæðinu (EES) varð Ísland virkur þátttakandi í Evrópusamvinnunni sem núorðið snertir flest svið samfélagsins. Í meistaranámi í Evrópufræðum á Bifröst læra nemendur að þræða sig eftir flóknum vef Evrópusamstarfsins auk þess sem þeir kynnast ólíkum hliðum hinnar nýju Evrópu. Þeir dýpka skilning sinn á því með hvaða hætti Ísland tengist samstarfi Evrópuríkja og hvaða tækifæri og möguleikar felast í fjölþjóðasamstarfi. Nemendum er veitt þjálfun í að greina Evrópusamrunann og leggja mat á hann efnahagslega og félagslega, menningarlega og í samhengi stjórnmála.
MA nám í menningarstjórnun hefur að markmiði að þjálfa stjórnendur í menningarlífi. Námið er miðað við þarfir fólks sem vill bæta við sig kunnáttu í þeim greinum sem varða rekstur og stjórnun menningarstofnana og menningarfyrirtækja og um leið dýpka skilning sinn á menningarlegum og félagslegum forsendum slíks rekstrar. Á þeim tveimur árum sem liðin eru síðan farið var af stað með þetta nám hefur fjölbreyttur hópur fólks úr menningar- og listalífi, skólakerfinu og fleiri sviðum samfélagsins stundað þetta nám á Bifröst, en fyrstu nemendurnir útskrifuðust haustið 2006.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur í grunnnám og meistaranám er til 15. júní 2010.
