Bókasafn

 

Bókasafnið er til húsa á fyrstu hæð í Hamragörðum. 

Sími: 433 3099

bokasafn@bifrost.is

 

 

Afgreiðslutími bókasafnsins - vetrartími:

 

Mánudagar - fimmtudagar kl. 10.00 - 17.00 og kl. 20.00 - 22.00

Föstudagar kl. 10.00 - 17.00

Laugardagar og sunnudagar kl. 12.00 - 14.00

 

 

Á vinnuhelgum í fjarnámi og sérstökum álagstímum í skólastarfi er afgreiðslutími safnsins rýmri og auglýstur sérstaklega.

 

 

Lesaðstaða

Í Hamragörðum er lestrarsalur með 32 lesbásum.

 

Hlutverk

Hlutverk bókasafnsins er að styðja rannsóknir, nám og kennslu með því að safna efni á fræðasviðum skólans og gera það aðgengilegt. Stefnt er að því að nemendur og starfsfólk Háskólans á Bifröst eigi greiðan aðgang að efni og upplýsingum úr alþjóðlegu háskóla- og rannsóknasamfélagi.

Skólinn á nokkuð safn íslenskra og þýddra bóka.  Þá má nefna tvo sérsöfn, söfn þeirra Jónasar Jónssonar frá Hriflu og  Guðmundar Sveinssonar fyrrverandi skólastjóra.

Háskólabókavörður tekur ákvarðanir um bókakaup í samvinnu við kennara.  Aðrir notendur hafa tillögurétt og geta lagt fram hugmyndir um aðföng. 

Tímarit og fréttabréf berast safninu reglulega og aðgangur að rafrænum tímaritum eykst stöðugt. Ekki er gert ráð fyrir að tímarit séu fjarlægð af safni nema til ljósritunar. Ljósritunarvélar eru á safninu og kort í þær fást  þar.

 

Starfsfólk

Andrea Jóhannsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur, veitir bókasafni háskólans forstöðu.   Aðstoðarmaður í safninu er Olga Matthildur Ingólfsdóttir, bókavörður.  Afgreiðsla í safninu á kvöldin og um helgar er að mestu í höndum nemenda.

 

 

Uppfært sept. 2010

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri