Í Háskólanum á Bifröst er virkt gæðaeftirlit. Háskólaráð kýs gæðaráð á fyrsta fundi sínum ár hvert. Í gæðaráði eiga sæti tveir fulltrúar kjörnir af deildarfundum hverrar deildar, annar kennari en hinn nemandi, ásamt formanni sem tilnefndur er af rektor.
Formaður gæðaráðs er Bryndís Hlöðversdóttir. Geirlaug Jóhannsdóttir starfar með gæðaráði. Frá viðskiptadeild eru tilnefndir sem aðalmenn Jón Freyr Jóhannsson og Máni Eskur Bjarnason. Frá lagadeild eru tilnefndir sem aðalmenn Einar Karl Hallvarðsson og Ása Kristín Óskarsdóttir. Frá félagsvísindadeild eru tilnefndir sem aðalmenn Jón Ólafsson og Davíð Fjölnir Ármannsson.
Gæðaráð semur reglur um gæðastaðla, sinnir gæðaeftirliti og ber ábyrgð á gæðamati og gæðastjórnun. Það endurskoðar gæðahandbók háskólans og gefur út árlega skýrslu um gæðamál.
GJ