Húsnæðissvið

Á húsnæðissviði starfa auk sviðsstjóra, húsvörður, starfsmenn viðhaldsdeildar, ræstitæknar og öryggisvörður. Úthlutun húsnæðis, húsaleigusamningagerð, samskipti við leigutaka, viðhald á fasteignum, lán á sölum vegna félagslífs, ræstingar og öryggisvarsla eru á ábyrgð húsnæðissviðs.
Á heimasíðu skólans má finna ítarlegar upplýsingar um það leiguhúsnæði  sem boðið er upp á og þá þjónustu sem húsnæðissvið veitir s.s. gátlista vegna úttekta og skila á húsnæði, reglur um úthlutun, húsreglur í sambýlum, þjónustugjaldskrá og gjaldskrá vegna leiguhúsnæðis, gátlista yfir húsbúnað, reglur um öryggisvörslu og áminningar o.fl. Starfsmenn viðhaldsdeildar sjá um að taka á móti verkbeiðnum í gegnum leigukerfi skólans.
 

 

Húsaleigusamningar
 

Húsaleigusamningar eru gerðir á skrifstofutíma á Háskólaskrifstofu milli kl. 14 og 16 eða eftir nánara samkomulagi við sviðsstjóra húsnæðis eða þjónustufulltrúa.

Nemendur eru hvattir til að færa lögheimili sitt að Bifröst en það er hagræði í því fyrir nemendur, þá sérstaklega fjölskyldufólk sem ætlar að sækja um leikskóla- eða skólavist fyrir börn sín. Eins hafa tryggingafélög boðið lægri iðgjöld af bifreiðatryggingum.

Hægt er að skrá sig á lögheimilið Bifröst nemendabústaðir, það er einkum ætlað fyrir einstaklinga sem flytja á milli einstaklingsherbergja á meðan námi stendur. Þeir sem það gera geta sótt um pósthólf hjá okkur á skrifstofu skólans.

 

 

Þjónustusími og neyðarnúmer
 

Ef upp koma neyðartilfelli (s.s. leki eða annað mjög aðkallandi) hringið þá í þjónustusímann sem er 695 9908 milli kl. 8:00 - 17:00 virka daga. Neyðaropnunum er sinnt milli 8-12 og 13-17. Ef neyðartilfelli koma upp milli kl. 17:00 - 08:00 virka daga eða um helgi/frídaga hringið þá í síma 695 9901.

 

Verkbeiðni

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri