Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf Háskólans á Bifröst er í Hamragörðum, 1. hæð.

 

Viðtalstímar náms- og starfsráðgjafa

mánudaga 10-15

miðvikudaga 10-15

föstudaga 11-15

 

Sjá nánari upplýsingar hér

 

NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2010 / COURSES IN FALL 2010

 

    

 

 

 

Hlutverk náms- og starfs ráðgjafar Háskólans á Bifröst er að veita nemendum margvíslegan stuðning og þjónustu meðan á námi stendur. Markmið ráðgjafarinnar er að stuðla að auknum árangri og vellíðan í námi.

 

 

 

Helstu þættir þjónustunnar eru eftirfarandi:

  

 

Ráðgjöf um vinnubrögð í háskólanámi

  • Markmiðasetning

  • Tímastjórnun og skipulag í námi

  • Lestrartækni og glósutækni

  • Prófundirbúningur og próftaka

  • Árangursrík hópavinna

 

Persónuleg ráðgjöf

  • Kvíða og streitustjórnun

  • Sjálfstyrking

  • Árangursrík samskipti og samstarf

 

Ráðgjöf vegna náms- og starfsvals

  • Upplýsingar um námsframboð og möguleg starfssvið að námi loknu og ráðgjöf við val

  • Áhugasviðsgreining

  • Greining færni og persónulegra styrkleika með tilliti til náms og starfa.

 

Ráðgjöf vegna atvinnuumsókna

  • Gerð starfsferilskráa (CV) og atvinnuumsókna

  • Undirbúningur fyrir atvinnuviðtöl

 

Ráðgjöf og úrræði vegna fötlunar eða sértækra námsörðugleika

  • Leitast er við að jafna aðstöðu og tækifæri til náms með sérúrræðum fyrir nemendur með sérþarfir.

  • Námsúrræði

  • Prófúrræði

 

Námskeið

Í boði eru ýmis námskeið er stuðla að bættum árangri og líðan í námi, s.s.:

  • Tímastjórnun og skipulag í námi

  • Hraðlestrarnámskeið

  • Prófundirbúningur og próftaka

  • Að koma sér á framfæri á vinnumarkaði - Líf eftir HB

  • Hagnýt aðferðir í hópavinnu

 

Námskeiðin eru auglýst sérstaklega hverju sinni á heimasíðu skólans og með tölvupósti til nemenda.

 

 

 

Ráðgjöfin byggist fyrst og fremst á viðtölum þar sem nemandi og ráðgjafi vinna að því í sameiningu að kortleggja vandann sem um ræðir, umfang hans og rætur auk þess að skoða og vinna með mögulegar leiðir til lausnar vandanum.

Einnig er notast við ýmis próf við kortlagningu á hinum ýmsu styrkleikum og veikleikum einstaklingsins. Helstu prófin eru Strong áhugasviðsprófið og LSS Leitaðu sjálfur að starfi.

Þá er um ýmsar æfingar eða þjálfun að ræða, bæði með ráðgjafa og sem heimaverkefni.

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri