Háskólaskrifstofa
Kennslustjóri er Ingibjörg Guðmundsdóttir
Netfang: inga@bifrost.is
Sími: 433 3011 / 699 7535
Sviðstjóri húsnæðissviðs er Halldóra Jónsdóttir
Netfang: halldora@bifrost.is
Sími: 433 3062
Náms- og starfsráðgjöf
Námsráðgjafar við Háskólann á Bifröst eru þær Marín Björk Jónasdóttir, marin@bifrost.is og Toby Sigrún Herman, toby@bifrost.is
Skrifstofur námsráðgjafa eru í Hamragörðum.
Nánari upplýsingar
Bókasafn
Andrea Jóhannsdóttir er háskólabókavörður, andrea@bifrost.is.
Afgreiðslutími:
Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10.00 – 17.00 og frá 20.00 til 22.00
Föstudaga frá kl. 10.00 - 17.00
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 12.00 - 14.00
Á vinnuhelgum í fjarnámi og sérstökum álagstímum í skólastarfi er afgreiðslutími safnsins rýmri og auglýstur sérstaklega.
Tölvudeild
Tölvudeildin er opin alla virka daga frá kl. 08.00 til kl 15.00, en lokað er í hádeginu frá 12.00 til 13.00. Starfsmenn hennar eru Unnur Ólafsdóttir, unnur@bifrost.is, sem sér um þjónustu við nemendur og prentara og Sigurður Kristófersson, netstjori@bifrost.is, sem sér um netstjórn.
Uppsetning nemendavéla
Flest það sem stilla þarf og setja upp geta nemendur gert sjálfir. Allar upplýsingar og leiðbeiningar má nálgast á heimasíðu skólans undir flipanum Þjónusta/Tölvuþjónusta/Skráning tölvu á net. Þar verður meðal annars hægt að nálgast upplýsingar um uppsetningu á prenturum, drifum og prentkvótaforriti. Vinsamlegast athugið að það þarf að skrá tölvuna áður en hægt er að setja upp prentara og sameignardrif.
Það að tölvur nemenda eru ekki settar á innra net skólans gerir auknar kröfur til nemandans sjálfs hvað varðar vírusvarnir og uppfærslur á stýrikerfi. Tölvudeild skólans sér ekki um að uppfæra stýrikerfi.
Apple Mac notendur
Þeim nemendum sem eru með Apple Mac tölvur, er bent á að koma í tölvuþjónustuna og fá aðstoð til að tengjast prenturum og drifum.
Þráðlausir sendar
Það er stranglega bannað að tengja þráðlausa senda inná netkerfi Háskólans nema með leyfi netstjóra. Hægt er að fá lánaða þráðlausa senda gegn 9.000 kr. skilagjaldi og switch/deili, gegn 6.500 kr. skilagjaldi.
Sjónvarpsmál
Fyrir íbúa háskólaþorpsins sem hafa nú þegar eða hafa áhuga á að fá sér áskrift að sjónvarpsstöðvum 365 miðla (Stöð2, Stöð2 sport o.fl.), þá skal tekið fram að það er hægt að taka á móti eftirtöldum stöðvum á Bifröst: Stöð2, Stöð2 Bíó, Stöð2 Sport, Stöð2 Sport2, Stöð2+, Skjár einn, RÚV og Sky News í stafrænum gæðum. (Hugsanlega hafa orðið einhverjar breytingar á útsendum stöðvum og bendum við notendum þá á að hafa samband við 365 miðla).
Háskólinn sendir jafnframt út á kerfið nokkrar gervihnattastöðvar, t.d. DR1, CNN, BBC, Cartoon Network, History Channel, NRK1, Discovery Channel og SVT1, eins er Skjár einn sendur út í ólæstri dagskrá. Netstjóri (netstjori@bifrost.is) er umsjónarmaður sjónvarpskerfis.
Þjónusta á svæðinu
Verslun
Samkaup Strax rekur matvöruverslun á svæðinu með allar helstu nauðsynjar, einnig netsnúrur og sjónvarpstengi, og ritföng fyrir skólann. Verslunin er opin frá 8:30 til 18.00 virka daga og frá 11:00 – 16:00 um helgar. Verslunarstjóri er Unnur Alexandra Sigurðardóttir, netfang bifrost@samkaup.is .
Í næsta nágrenni er svo verslun í Baulu og tveir stórmarkaðir í Borgarnesi, Samkaup og Bónus. Þá er sérvöruverslun Hagkaupa að finna í Borgarnesi sem og ýmsar minni verslanir í Hyrnutorgi. Vöruverð í þessum verslunum er svipað og í sambærilegum verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Kaffi Bifröst
Kaffi Bifröst er kaffihúsið á Bifröst, það tekur um 100 manns í sæti. Á Kaffi Bifröst er boðið upp á heitan mat í hádeginu; rétt dagsins, súpu, brauð og salat. Auk þess má fá ýmsa rétti af matseðli. Súpa dagsins er á 350 kr. Réttur dagsins á 650 kr. og svo er hægt að fá lítinn skammt af salatbarnum á 300 kr. en stórann á 450 kr. Kaffihúsið er opið virka daga frá kl. 07:50-22:00, laugardaga frá kl. 11:00-21:00 og sunnudaga frá kl. 14:00-21:00.
Líkamsrækt
Líkamsræktin og pottasvæðið er opið alla daga frá klukkan 06:00 á morgnana til 23:00 á kvöldin. Gufubað er opið á morgnana og á kvöldin. Glerflöskur og reykingar eru stranglega bannaðar innan líkamsræktarsvæðisins. Oft er boðið upp á spinning o.fl. án endurgjalds og eru þeir tímar auglýstir sérstaklega.
Þvottahús
Þvottahús er sameiginlegt fyrir alla nemendur og starfsmenn skólans. Þar eru 6 þvottavélar, þurrkarar, snúrur, straubretti og straujárn. Þvottaefni er til staðar. Panta þarf tíma á þar til gerðri töflu í þvottahúsinu og mikilvægt er að ekki sé farið fram yfir skráðan þvottatíma. Séu tíu mínútur liðnar af skráðum þvottatíma er öllum frjálst að nýta tímann séu vélarnar ekki í notkun. Þvottahúsið er staðsett í kjallara Hamragarða.
Öryggisvarsla
Bakvaktarsími, 695-9901, er opinn frá klukkan 17:00 til 08:00 á virkum dögum og frá 17:00 á föstudögum til 08:00 á mánudagsmorgnum. Bakvaktarsíminn er ætlaður til að sinna neyðartilfellum varðandi húsnæði, svo sem ef fólk læsir sig úti eða upp kemur leki sem laga þarf strax. Bakvaktarsíminn er jafnframt sími öryggisvarðar.
Vegna ónæðis skal hringja í öryggisvörð í síma 695-9901. Verði sá sem veldur ónæði ekki við óskum öryggisvarðar um að láta af ónæði er honum veitt áminning. Við aðra áminningu er viðkomandi vikið úr húsnæði nemendagarða.
Skólanum er lokað klukkan 23:00 á kvöldin á virkum dögum og um klukkan 18:00 á föstudögum. Skólinn er opnaður klukkan 07:30 á virkum dögum.
Gæludýr
Sömu reglur og í Borgarbyggð gilda um gæludýrahald á Bifröst. Sækja skal um leyfi fyrir gæludýr í Ráðhúsi Borgarbyggðar. Ekki er heimilt að halda gæludýr í einstaklingsíbúðum, Hamragörðum. Gæludýrahald er jafnframt óheimilt í íbúðum sem leigðar eru með húsgögnum.
Raflyklar að skólanum
Hægt er að fá raflykil að skólanum gegn 2000 kr. tryggingagjaldi.