Ávarp rektors

 


Bifröst er magnaður staður. Hér við rætur eldfjallsins Grábrókar hefur verið byggður upp háskóli í fremstu röð á sviði viðskipta, laga og félagsvísinda. Hér verða til tengsl milli nemenda sem endast ævina á enda. Hér mótast fólk til forystu og góðra verka fyrir atvinnulíf og samfélag og kemur út í lífið búið þeim tækjum sem þarf til að gera gagn og byggja upp.


Saga skólans nær aftur til 1918 þegar Samvinnuskólinn var stofnaður af Jónasi Jónssyni frá Hriflu við Sölvhólsgötu í Reykjavík, en hann var mótaður á grunni þeirrar alþýðumenntunar sem var að ryðja sér rúms í Evrópu um þarsíðustu aldamót. Ruskin College í Oxford var fyrirmyndin, en það var skóli sem menntaði forystufólk úr hópi alþýðunnar og átti sinn þátt í að brjóta upp þá feysknu elítumenntun sem tíðkast hafði á Bretlandseyjum fram að því. Skólinn flutti að Bifröst í Norðurárdal árið 1955 og þá lét Jónas af störfum og við tók séra Guðmundur Sveinsson, sem stýrði skólanum hér á Bifröst í hátt í tvo áratugi.


Skólinn hefur alla tíð verið í fararbroddi viðskipta- og rekstrarmenntunar á Íslandi og hafa þeir sem haldið hafa um stjórnartauma borið gæfu til að uppfæra hann reglulega í takt við tímann. Þannig fór skólinn á háskólastig árið 1988 og síðan þá hefur hann eflst mjög og býður nú upp á háskólanám í þremur deildum, til bakkaláreat- og meistaraprófs.


Kennslufræði skólans miðar að háu þjónustustigi við nemendur og því að skapa einstaka umgjörð um námið sem hvergi er í boði annarsstaðar við íslenska háskóla. Háskólaþorpið er þéttbyggt og hannað með það í huga að vera barn- og fjölskylduvænt. Hér er umferðinni haldið í útjaðri þorpsins og öll nauðsynleg þjónusta til staðar innan þorpsins. Hér er rekinn leikskóli sem starfar eftir Hjallastefnunni, hér er kjörbúð sem selur allar helstu nauðsynjar, hér er kaffihús og veitingastaður, fullkomin líkamsræktaraðstaða, battavöllur, heitir pottar, golfvöllur handan vegar og grunnskólabörnum er ekið í skólabíl að Varmalandi neðar í sveitinni. Þá er ónefnd hin ægifagra náttúra hér allt um kring, sem býður upp á óteljandi möguleika til útivistar.


Skólinn tekur vel á móti áhugasömum umsækjendum um skólavist og hvet ég þig, kæri lesandi, til að kynna þér starf skólans hér á vefsíðunni, með því að hafa samband við okkur í síma eða tölvupósti, eða þá heimsækja okkur á Bifröst. Sjón er sögu ríkari.


Verið velkomin í Háskólann á Bifröst

 

Magnús Árni Magnússon
rektor

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri