Fréttir
27. ágúst 2010 02:15

Skólasetning Háskólans á Bifröst

Háskólinn á Bifröst verður settur miðvikudaginn 1. september 2010 kl. 9:00 í Hriflu, aðalsamkomusal skólans.
Að setningu lokinni verður haldin stutt kynning á námsumhverfi og kennslu skólans.

Ítarlega dagskrá fyrir dagana 1. - 3. september er að finna hér

meira...
24. ágúst 2010 06:37

Tónlist sem vettvangur vísinda ráðstefna 31. ágús

Alþjóðleg málstofa um tónlist sem vettvang vísinda á vegum Háskólans á Bifröst í samvinnu við Háskóla Íslands og FÍH, verður haldin í sal Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, þriðjudaginn 31. ágúst frá kl. 14 - 17.  

meira...
23. ágúst 2010 01:35

Hugmyndasmiðjan 2010 fyrir frumkvöðla

Í september mun Hugmyndahús háskólanna hleypa af stokkunum  Hugmyndasmiðjunni 2010 fyrir frumkvöðla sem ganga með hugmynd í maganum eða eru komnir skammt á veg og vilja koma henni í framkvæmd. Hér verður spyrnt saman skapandi greinum, tækni, vísindum og viðskiptum því allir eru velkomnir. í Hugmyndasmiðjunni vinna þátttakendur að því að ramma inn sína hugmynd og í lok smiðjunnar eiga þeir að vera í stakk búnir til að hefja vinnslu viðskiptaáætlunar.
Hugmyndasmiðjan verður sjósett 2. september kl. 17.15 og stendur í 6 vikur. Fyrirlestrar verða haldnir á fimmtudögum kl. 17.15 og vinnusmiðjur á laugardögum milli kl. 10.00 og 13.00. Í lokin verður úthlutað 6 hvatningarverðlaunum að upphæð 500.000 kr. hver til þeirra hugmyndasmiða sem þykja hafa unnið best úr sinni hugmynd.
 
Fréttatilkynningin sjálf er í viðhenginu
meira...
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri