24. júní 2010
Helga Kristín gestaprófessor í Háskólanum í Miami
Helga Kristín Auðunsdóttir, viðskiptalögfræðingur, sem lauk ML gráðu frá Háskólanum á Bifröst, hefur þegið boð lagadeildar Háskólans í Miami um stöðu gestaprófessors við skólann næsta skólaár. Helga Kristín lauk bæði BS prófi og meistaraprófi í lögum frá Bifröst og fjallaði lokaverkefni hennar um samkeppnisrétt
Helga mun kenna tvö námskeið á sviði evrópuréttar. Í tilkynningu frá Háskólanum í Miami segist Helga hlakka til að kenna sína uppáhalds námsgrein. „Ég vonast til að geta nýtt mér þær fjölbreyttu kennsluaðferðir sem ég hef upplifað í mínu námi“, en Helga hefur stundað nám í Grikklandi, Venesúela, Bretlandi og Bandaríkjunum auk Bifrastar. „Aðferðir við laganám eru vissulega mismunandi í þessum löndum en lykillinn að árangri er alls staðar sá sami: Dugnaður. Í því felst gríðarmikill lestur í bland við gagnrýna hugsun og hugrekki til að spyrja spurninga“, segir Helga Kristín Auðunsdóttir.
Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, er mjög ánægð fyrir hönd Helgu. „Háskólinn í Miami er mjög virtur. Þetta er því mikill heiður fyrir Helgu Kristínu og ákveðin viðurkenning fyrir okkur hér á Bifröst líka. Við erum mjög stolt af henni Helgu".
Hægt er að sjá fréttina um þetta á ensku með því að smella hér.