Stefna háskólans

Inngangur

  • Meðfylgjandi stefnumótun Háskólans á Bifröst 2008-2012 byggist á vinnu stjórnar og stjórnenda Háskólans á Bifröst.
  • Háskólinn á Bifröst er sjálfseignarstofnun með sjálfstæðri stjórn sem skipuð er fulltrúum atvinnulífs og Hollvinasamtaka skólans, auk fulltrúa háskólaráðs.

 

Sýn

Að halda áfram að mennta forystufólk fyrir atvinnulíf og samfélag.

 

Hlutverk

  • Að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu umhverfi með alhliða háskólastarfsemi á sviði félagsvísinda.
  • Að styrkja íslenskt atvinnulíf með góðri menntun og öflugum rannsóknum.
  • Að byggja samfélag þar sem vel er búið að öllum og áhersla lögð á mannlega reisn og þroskandi umhverfi.

 

Markmið

  • Að byggja upp öflugan alþjóðlegan háskóla með sterku tengslaneti við aðra háskóla, sérfræðinga, atvinnulíf og samfélag.
  • Að byggja upp öflugar rannsóknir í félagsvísindum með áherslu á íslenskt og alþjóðlegt atvinnu- og viðskiptalíf.
  • Að efla frumkvæði, aðlögunarhæfni og sveigjanleika nemenda og auka færni þeirra til ákvarðanatöku og forustu í hópum.
  • Að útskrifa nemendur sem hafi þekkingu og þjálfun til þess að takast á við raunhæf verkefni og sem hafi alþjóðlega víðsýni, samstarfs- og samskiptahæfni og skapandi og gagnrýna hugsun.
  • Að nýta sérstöðu Bifrastar til að byggja upp umhverfisvænt samfélag.
  • Að styrkja enn frekar sérstöðu Bifrastar sem fjölskylduvæns háskólaþorps með stuttar boðleiðir og góða grunnþjónustu.

 

Gildi

  • Læra – Góð menntun skapar hæfa einstaklinga, reiðubúna að axla ábyrgð og veita forustu í atvinnulífi og samfélagi.
  • Lifa – Sjálfstæðir og víðsýnir einstaklingar með jákvætt viðhorf til allra viðfangsefna njóta trausts og virðingar.
  • Leika – Gleði og leikur skapar árangur í lífi og starfi. 


Framtíðarsýn

  • Háskólinn á Bifröst sé þekkingarsetur í  samkeppni við aðra háskóla, innlenda sem erlenda.
  • Háskólinn vill ná samkeppnisforskoti með  sveigjanleika, nýjungum og gæðum, fjölmörgum umsækjendum sem valið er úr og hæfu starfsfólki.
  • Háskólasamfélagið á Bifröst, háskólaþorpið, verði áfram og í vaxandi mæli hluti af sérstöðu skólans og aðdráttarafli fyrir nám á Bifröst.
  • Háskólinn á Bifröst hafi ávallt á að skipa hæfu starfsfólki til kennslu og þjónustu við nemendur sem vinnur saman sem ein heild að markmiðum skólans.
  • Stöðugt sé leitað leiða til þess að bæta árangur í námi og þjónustu við nemendur og stöðugt séu teknir upp nýir starfshættir þannig að svo megi verða, m.a. með virku samstarfi nemenda og starfsmanna.
  • Starfsmenn háskólans og nemendur séu virkir þátttakendur í samfélagsumræðunni og sýni sóknarhug og stolt.
  • Háskólinn á Bifröst sé vakandi fyrir nýjum tækifærum sem svara þörfum nemenda, atvinnulífs og samfélags.
  • Háskólinn hafi frumkvæði að nýjungum í kennsluháttum með tæknivæðingu og skipulagi sem hentar hraða samtímans.
  • Háskólinn á Bifröst stefnir að því að skapa nemendum sínum samkeppnisyfirburði á vinnumarkaði að námi loknu.
  • Bifröst sé óháður háskóli sem gerir ríkar kröfur til starfsfólks og nemenda og býr yfir sveigjanleika til þess að takast á við breytingar í alþjóðlegu samfélagi.
  • Háskólinn á Bifröst veiti hverjum nemanda persónulega þjónustu og góða aðstöðu til náms og þroska.

 

Samfélag 

  • Háskólinn á Bifröst er þáttakandi í þróun hins alþjóðlega háskólasamfélags.
  • Skólinn ræktar tengsl við innlenda og erlendra háskóla í því skyni að efla námsframboð og rannsóknarsamstarf.
  • Öflugt samstarf við atvinnulífið og hollvinasamtök skólans er skólanum mikilvægt.
  • Borgarbyggð er mikilvægur samstarfsaðili við uppbyggingu háskólasamfélagsins.

 
Nemendur

  • Skólinn vill laða til sín hæfa einstaklinga sem búa yfir sköpunargleði, frumkvæði og samskiptahæfni og veita þeim tækifæri til úrvalsmenntunar á sviði félagsvísinda.
  • Skólinn ætlar nemendum ríkt hlutverk í sköpun þekkingar og mótun háskólasamfélagsins.
  • Skólinn leggur áherslu á virka tengingu námsins við viðskipti, stjórnsýslu og stjórnmál.
  • Skólinn leitast við að veita jöfn tækifæri til náms, óháð kynferði, aldri, þjóðerni, efnahag, fötlun eða búsetu og skapar þannig fjölbreyttan hóp nemenda með ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu.

 

Starfsfólk

  • Háskólinn á Bifröst vill búa að vel menntuðu og hæfu starfsfólki.
  • Skólinn vill tryggja sér samkeppnishæfni með áhugaverðum verkefnum, góðum launum, raunhæfum starfsþróunarmöguleikum og góðri aðstöðu starfsfólks.
  • Háskólinn leggur áherslu á að fá til kennslu kennara í fremstu röð frá erlendum samstarfsháskólum og einstaklinga í fremstu röð í íslensku og alþjóðlegu atvinnulífi.
  • Skólinn leggur áherslu á að akademískir starfsmenn njóti fulls rannsóknafrelsis og hvetur þá til rannsókna.


 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri